Lífið

Fyrsta trans ofurhetjan

Þórhildur Erla Pálsdóttir skrifar
Nicole Maines mun leika Nia Nal í fjórðu seríunni af Supergirl.
Nicole Maines mun leika Nia Nal í fjórðu seríunni af Supergirl. Vísir/Getty
Þættirnir Supergirl verða þeir fyrstu til þess að vera með trans ofurhetju. Leikkonan Nicole Maines sem er sjálf trans mun leika hlutverk Nia Nal. Tilkynnt var um þetta á Comic Con hátíðinni í San Diego í Kaliforníu á dögunum. 

Leikkonan sagði að það væri viðeigandi að vera með trans ofurhetju sem að trans börn geta litið upp til. Nia Nal mun verða kynnt til leiks í fjórðu seríu af Supergirl þáttunum sem sýndir eru á Sky One í Bretlandi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×