Fótbolti

Fyrsta tap OB

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Ari og félagar eru í 2. sæti dönsku úrvalsdeildarinnar.
Ari og félagar eru í 2. sæti dönsku úrvalsdeildarinnar. vísir/getty
Hallgrímur Jónasson, Ari Freyr Skúlason og félagar þeirra í OB biðu lægri hlut fyrir Midtjylland, 1-0, í 3. umferð dönsku úrvalsdeildarinnar í kvöld.

Hallgrímur og Ari léku allan leikinn fyrir OB sem var búið að vinna tvo fyrstu leiki sína í deildinni.

Þetta var hins vegar þriðji sigur Midtjylland í jafnmörgum deildarleikjum. Morten Duncan skoraði sigurmarkið á lokamínútunni í kvöld.

OB tekur á móti Theodóri Elmari Bjarnasyni og félögum hans í AGF í næsta leik sínum eftir viku.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×