Handbolti

Fyrsta tap Holstebro

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Vignir Svavarsson.
Vignir Svavarsson. vísir/daníel
Íslendingaliðið Team Tvis Holstebro mátti sætta sig við sitt fyrsta tap í dönsku úrvalsdeildinni í handbolta.

Þá tapaði liðið gegn GOG, 25-23, en þetta var fyrsti sigur GOG á tímabilinu.

Vignir Svavarsson skoraði tvö mörk fyrir Holstebro í kvöld en  Egill Magnússon komst ekki á blað.

Í úrvalsdeild kvenna skoraði Rut Jónsdóttir eitt mark fyrir FC Midtjylland er það vann stórsigur, 32-22, á Ringköbing í kvöld. Rut nýtti eitt af fjórum skotum sínum í kvöld.

Midtjylland er búið að vinna báða leiki sína í deildinni í vetur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×