Glamour

Fyrsta sýnishornið frá framhaldi Love Actually loksins birt

Ritstjórn skrifar
Allir uppáhalds persónurnar okkar snúa aftur.
Allir uppáhalds persónurnar okkar snúa aftur. Mynd/Skjáskot
Framhald Love Actually, sem mun bera nafnið Red Nose Day Actually, verður frumsýnt um helgina. Framhaldið, sem verður aðeins 10 mínútna langt, er sýnt í tilefni góðgerðarsöfnuninnar Red Nose Day í Bretlandi. Loksins hefur nú verið birt stikla úr myndinni. 

Í henni má sjá allar helstu persónurnar halda á pappaspjöldum, eins og var gert í frægri senu í upphaflegu myndinni. Keira Knightley, Liam Neeson, Rowan Atkinson, Hugh Grant og fleiri munu koma fram í myndinni eins og má sjá hér fyrir neðan.










×