Bíó og sjónvarp

Fyrsta stiklan úr nýjustu mynd Quentin Tarantino

Stefán Árni Pálsson skrifar
Heill her leikara kemur fram í þessari mynd.
Heill her leikara kemur fram í þessari mynd.
Áttunda kvikmynd Quentin Tarantino er á leiðinni og ber hún nafnið The Hateful Eight.

Nú er loks komin glæný stikla úr myndinni en með aðalhlutverk fara Kurt Russell, Jennifer Jason Leigh, Samuel L. Jackson, Walton Goggins, Demián Bichir, Michael Madsen, Tim Roth, og Bruce Dern.

Myndin verður frumsýnd um jólin og bíða eflaust margir spenntir eftir enn einu meistaraverkinu frá Íslandsvininum. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×