Bíó og sjónvarp

Fyrsta stikla Guardians of the Galaxy 2

Samúel Karl Ólason skrifar
Gamora, Peter Quill og Drax.
Gamora, Peter Quill og Drax.
Marvel hefur nú birt fyrstu stikluna fyrir Guardians of the Galaxy 2. Peter Quill, eða Star-Lord, snýr aftur ásamt vinum sínum Gamora, Rocket, Groot, Yondu og fleirum til að koma alheiminum til bjargar.

Ekki liggja fyrir miklar upplýsingar um söguþráð myndarinnar en hún er sögð snúast að einhverju leyti um leit Quill að föður sínum.

Stiklan gefur ekki miklar vísbendingar, en þar má þó sjá smávaxinn Groot.

Kvikmyndin verður frumsýnd í maí á næsta ári.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×