Lífið

Fyrsta samkynja dansparið til að keppa fyrir Íslands hönd

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Margrét Sigurðardóttir.
Margrét Sigurðardóttir. vísir/arnþór
„Ég heyrði fyrst um keppnina árið 2009 og það hefur verið draumur minn að taka þátt allar götur síðan. Ég elska að dansa fyrst og fremst en mér finnst líka pínulítið fyndið að taka þátt,“ segir Margrét Sigurðardóttir.

Hún og frænka hennar, Sigrún Þuríður Runólfsdóttir, eru í viðtali á vefsíðunni Gay Iceland en þær eru  fyrsta samkynja dansparið til að keppa fyrir Íslands hönd í fullorðinsflokki í dansi á Evrópuleikunum á næsta ári. Þetta verður einnig í fyrsta sinn sem Íslendingar keppa í dansi á Evrópuleikunum, sem er stærsti íþróttaviðburðurinn í samfélagi samkynhneigðra, tvíkynhneigðra og transfólks.

Margrét er fyrrverandi fótboltakona en Sigrún æfði samhæfðan skautadans. Þó þeim finnist þátttaka í Evrópuleikunum fyndin taka þær keppnina afar alvarlega.

„Við erum búnar að ráða einn besta dansþjálfara á þessu sviði á Íslandi. Hún heitir Elísabet Sif Haraldsdóttir og býr sem stendur í Kanada. Við ákváðum að fá alvöru þjálfara. Einhvern sem gæti skilað okkur árangri. Við ætlum í úrslit!“ segir Sigrún.

„Það er eina leiðin til að gera þetta. Maður setur takmörkin ekki lágt, það leiðir ekki til velgengni,“ bætir frænka hennar við.

„Við elskum áskoranir. Við viljum keppa við hæfileikaríkt fólk,“ segir Sigrún og hlær en Margrét bætir við að henni finnist markmið þeirra raunhæf. Þær ætla að keppa í latindönsum á leikunum og dansa Cha cha, Jive, Rúmbu, Samba og Paso doble.

Margrét hefur aldrei æft dans þó hún hafi farið á nokkur námskeið, bæði hér heima og í Ástralíu þar sem hún bjó.

„Það eru næstum því tuttugu ár síðan ég hætti í samkvæmis- og latindönsum,“ segir Sigrún.

„En þú byrjaðir að æfa dans þegar þú varst fjögurra ára!“ bætir frænka hennar við. Hún valdi að dansa með Sigrúnu því hún er atvinnumaður.

„Maður þarf að hugsa: Hvernig skara ég fram úr? Og ég hugsaði: Ég þarf að para mig saman við einhvern sem er mjög hæfileikaríkur. Við erum ekki að keppa til að fíflast. Þetta er áskorun. Fyrir mig, að minnsta kosti. Ég hef aldrei keppt í dansi áður.“

Hér má lesa viðtalið við frænkurnar í heild sinni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×