Innlent

Fyrsta PIP-púðamálið tapast í áfrýjunarrétti

Fanney Birna Jónsdóttir skrifar
Alls fengu um 440 íslenskar konur ígræddar PIP-brjóstafyllingar með iðnaðarsilíkoni.
Alls fengu um 440 íslenskar konur ígræddar PIP-brjóstafyllingar með iðnaðarsilíkoni. nordicphotos/afp

Franskur áfrýjunardómstóll sýknaði TÜV Rheinland í fyrstu hópmálsókninni í PIP-brjóstafyllingamálinu svokallaða en nokkur þúsund konur hafa höfðað mál gegn fyrirtækinu sem hafði eftirlit með framleiðslu brjóstafyllinganna. Um 440 íslenskar konur fengu ígræddar PIP-brjóstafyllingar en af þeim hafa 204 konur höfðað mál á hendur TÜV Rheinland sem vottaði og sá um eftirlit með framleiðslu brjóstafyllinganna í Frakklandi.



Dómsmálin sem hafa verið höfðuð eru þrjú, en íslensku konurnar tilheyra stærstu málsókninni sem er númer tvö í röðinni og verður mál þeirra flutt 24. júlí næstkomandi í Frakklandi.

Saga Ýrr Jónsdóttir, lögmaður

Saga Ýrr Jónsdóttir, lögmaður íslensku kvennanna, segir dóminn hafa lítil áhrif á málsókn Íslendinganna.



„Dómnum verður væntanlega áfrýjað til Cour de cassation [efsta dómstigs Frakklands] en gera má ráð fyrir að niðurstaða þess dómstóls liggi ekki fyrir fyrr en eftir eitt ár. Þrátt fyrir að mínir umbjóðendur séu ekki aðilar að málinu þá hef ég þó að sjálfsögðu rætt málið við frönsku lögmennina og greint þeim frá þeirri skoðun minni að það eigi að fara með málið alla leið.“



Saga segir liggja fyrir að þar sem íslensku konurnar eru ekki aðilar að málinu sem tapaðist þá eru þær ekki með aðgengi að öllum upplýsingum um málið.



„Þessi dómsniðurstaða verður væntanlega til þess að íslenskar konur fá ekki dæmda svokallaða innborgun inn á málið. Þá getur þetta leitt til þess að mál íslenskra kvenna tefjist á meðan beðið verður eftir niðurstöðu Cour de cassation í fyrstu hópmálsókninni,“ segir Saga.



Aldrei fyrr hafa svo margir Íslendingar sótt mál saman eftir því sem næst verður komist en mál íslensku kvennanna verður eins og áður segið tekið fyrir í lok júlí.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×