Bíó og sjónvarp

Fyrsta myndbrotið úr Fifty Shades of Grey er funheitt

Baldvin Þormóðsson skrifar
Í myndbrotinu fá áhorfendur innsýn inn í eldheitt samband Mr. Grey og Anastasiu Steele.
Í myndbrotinu fá áhorfendur innsýn inn í eldheitt samband Mr. Grey og Anastasiu Steele. mynd/skjáskot
Fyrsta myndbrotið úr væntanlegri mynd leikstjórans Sam Tayler-Johnson sem ber nafnið Fifty Shades of Grey og er byggð á samnefndri bókaseríu eftir rithöfundinn L.L. James hefur verið birt á veraldarvefnum.

Myndbrotið, sem er um það bil tvær og hálf mínúta á lengd sýnir leikarann Jamie Dornan sem fer með hlutverk auðmannsins Christian Grey að tæla hina ungu Anastasia Steele sem leikin er af Dakota Johnson.

Gríðarleg eftirvænting er eftir kvikmyndinni en bókin hefur aflað sér gríðarlegra vinsælda um allan heim. Sagan segir frá auðugum viðskiptamanni sem glímir við kynlífsfíkn að tæla unga skólastelpu.

Í myndbrotinu má heyra nýstárlega útgáfu af laginu Crazy in Love með Beyoncé en hún gerði nýju útgáfu sérstaklega fyrir myndina.

Myndbrotið má sjá hér að neðan.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×