Tíska og hönnun

Fyrsta myndband KALDA eftir Silju Magg

Íslenska fatamerkið KALDA hefur átt mikilli velgengni að fagna undanfarið, en Katrín Alda Rafnsdóttir er eigandi og yfirhönnuður merkisins.

Nú nýlega skaut hún myndband í samvinnu við ljósmyndarann Silju Magg þar sem Ísland og Kalda eru í forgrunni, en myndbandið hefur vakið gríðarlega athygli.

Kolfinna Kristófersdóttir, fyrirsæta, sem meðal annars hefur gengið tískupalla fyrir tískurisa á borð við Marc Jacobs, leikur stórt hlutverk í myndbandinu sem var meðal annars tekið upp á Rauðhólum.

Um tónlist sá listamaðurinn Úlfur Hansson, en hann er einnig mágur Katrínar Öldu.

KALDA infallout from Silja Magg on Vimeo.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×