Fótbolti

Fyrsta mark Elfars Freys dugði Horsens ekki til sigurs

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Elfar er á láni hjá Horsens frá Breiðabliki.
Elfar er á láni hjá Horsens frá Breiðabliki. vísir/eyþór
Elfar Freyr Helgason skoraði sitt fyrsta mark fyrir Horsens þegar liðið tapaði 2-1 fyrir OB í dönsku úrvalsdeildinni í dag.

Elfar var í þriðja sinn í byrjunarliði Horsens í dag og þakkaði traustið með marki. Miðvörðurinn jafnaði metin í 1-1 í uppbótartíma fyrri hálfleiks.

Elfar var tekinn af velli á 82. mínútu en í uppbótartíma skoraði Jens Thomasen sigurmark OB.

Kjartan Henry Finnbogason lék allan leikinn í framlínu Horsens. Liðið er í 3. sæti síns riðils en það hefur tapað þremur af síðustu fjórum leikjum sínum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×