Tónlist

Fyrsta lag Island songs byggt á atriði úr Vonarstræti

Birgir Örn Steinarsson skrifar
Ólafur Arnalds tónlistarmaður og Baldvin Z eru nú við tökur á tónlistarmyndinni Island songs. Tökur á myndinni munu standa yfir í allt sumar áætlað er að heimsækja sjö vel valda staði á Íslandi þar sem Ólafur vinnur með vel völdum tónlistarmanni. Hugmyndin er að birta nýtt lag vikulega, á mánudögum frá og með deginum í dag.

Fyrsta lagið í Island songs röð Ólafar er lagið Árbakkinn en það er tilvísun í atriði kvikmyndarinnar Vonarstræti sem Baddi Z gerði og Ólafur Arnalds gerði tónlistina við. Ljóðskáldið er Einar Georg, faðir tónlistarmannanna Ásgeirs Trausta og Þorsteins úr Hjálmum. Einar hefur samið texta fyrir báða syni sína fyrir plötur þeirra.

Myndbandið er skotið í einni töku á Hvammstanga þar sem Einar Georg býr. Tónlistin sem Ólafur spilar undir er byggt á sama þema og ómaði undir ljóðinu sem Móri flytur í Vonarstræti. Myndbandið má sjá hér að ofan.

Lagið er þegar fáanlegt á helstu netveitum á borð við Spotify og Apple Music. Myndin, sem Baddi og Ólafur gera saman, verður tilbúin í október.


Tengdar fréttir

Markmiðið að kynna íslenska tónlist fyrir útlendingum

Baddi í Jeff Who?, stendur ásamt þeim Jóni Atla Guðjónssyni og Skúla Helga Sigurgíslasyni á bakvið nýjan vettvang í formi sjónvarpsstöðvar sem kallast Music Reach. Hagsmunir íslenskra tónlistarmanna eru hafðir að leiðarljósi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×