Tónlist

Fyrsta lag Gwen Stefani í átta ár

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Söngkonan Gwen Stefani er búin að setja nýjasta lag sitt á YouTube. Lagið heitir Baby Don't Lie og er fyrsta sólólagið hennar í átta ár.

Lagið samdi hún með upptökustjórunum Benny Blanco, Ryan Tedder og Noel Zancanella en lagið er hægt að kaupa á iTunes.

Brot úr myndbandi við lagið verður sýnt í raunveruleikaþættinum The Voice á sjónvarpsstöðinni NBC í kvöld en allt myndbandið verður frumsýnt á morgun á Vevo.

Baby Don't Lie verður á þriðju sólóplötu söngkonunnar en ekki er ljóst hvenær hún kemur út. Síðasta sólóplata Gwen, The Sweet Escape, kom út árið 2006.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×