Viðskipti innlent

Fyrsta konan til að gegna stöðu fram­kvæmda­stjóra Bíl­greina­sam­bandsins

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
María Jóna Magnúsdóttir.
María Jóna Magnúsdóttir. rrrfffkkkk
María Jóna Magnúsdóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri Bílgreinasambandsins en hún tekur við starfinu af Özuri Lárussyni sem lætur senn af störfum.

María Jóna er fyrsta konan til að gegna stöðu framkvæmdastjóra Bílgreinasambandsins, sem eru samtök atvinnurekenda í sölu ökutækja, vöru og þjónustu þeim tengdum. Í dag eru 155 aðildafélagar að sambandinu þ.e. almenn bílaverksæði, bílasölur, bílaumboð, hjólbarðaverkstæði, málningar- og réttingaverkstæði, ryðvarnarstöðvar, smurstöðvar, varahlutasalar og aðrir þjónustuaðilar í bílgreininni. Hér á landi starfa um fjögur þúsund manns í bílgreininni.

Í samtali við Vísi segir María Jóna að nýja starfið leggist vel í hana.

„Þetta er mjög spennandi og mjög krefjandi verkefni sem leggst bara mjög vel í mig, en ég þekki bílamarkaðinn ágætlega þar sem ég hef verið þar lengi,“ segir María Jóna en hún hefur starfað í bílgreininni í tæpa tvo áratugi, nú síðast sem framkvæmdastjóri viðskiptatengsla og síðar framkvæmdastjóri sölusviðs Heklu.

Þá var hún áður yfirmaður viðskiptatengsla hjá Toyota ásamt því sem hún var sérfræðingur og verkefnastjóri við innleiðingu straumlínustjórnunar hjá Arion banka.

María útskrifaðist með MS.c. í fjármálum og stefnumótun frá Copenhagen Business School árið 2012 og áður með BS.c í viðskiptafræði frá Háskólanum í Reykjavík. María hefur þegar hafið störf hjá Bílgreinasambandinu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×