Viðskipti innlent

Fyrsta hraðhleðslustöðin á Suðurlandi opnuð

Magnús Hlynur Hreiðarsson skrifar
Guðmundur Ármann Pétursson opnaði nýju hraðhleðslustöðina á Selfossi við Olís í dag, ásamt forsvarsmönnum verkefnisins.
Guðmundur Ármann Pétursson opnaði nýju hraðhleðslustöðina á Selfossi við Olís í dag, ásamt forsvarsmönnum verkefnisins. Vísir/Magnús Hlynur Hreiðarsson
Ökumenn rafbíla geta nú hlaðið bílinn á nýrri hraðhleðslustöð sem Orka náttúrunnar (ON) hefur sett upp í samstarfi við Olís á Selfossi og var opnuð nú síðdegis. Þetta er áttunda stöðin af tíu sem ON mun halda úti á Suður- og Vesturlandi.

Guðmundur Ármann Pétursson, framkvæmdastjóri Sólheima, sá um að opna stöðina á Selfossi. Hann hefur átt rafmagnsbíl í tæpt ár. Hraðhleðslustöðvarnar gera honum kleift að komast allra ferða sinna án nokkurra vandkvæða og telur hann þær lykilþátt í að hraða rafbílavæðingu á Íslandi. Með tilliti til umhverfissjónarmiða og fjárhagslegs sparnaðar séu rafbílar það eina rétta fyrir íslenskt framtíðarsamfélag.

Tíu nýir rafbílar á mánuði

Frá áramótum hafa tíu rafbílar bæst við bílaflota Íslendinga mánaðarlega. Fjölbreytt framboð rafbíla hefur aukist verulega síðustu mánuði. Hjá Norðmönnum er nú 21 rafbílategund á markaði. Þróunin er svipuð hér á landi. Rekstur rafbíla sparar peninga og minnkar útblástur.

Á vef Orkuseturs er að finna reiknivél sem ber orkukostnað rafbíla saman við orkukostnað annarra bifreiða. Reiknivélin segir jafnframt til um hverju munar í útblæstri gróðurhúsalofttegunda. Flestir rafbílaeigendur hlaða bíla sína heima hjá sér eða á vinnustað sínum. Til að stuðla að öruggum frágangi hleðslubúnaðar hefur Mannvirkjastofnun gefið út fræðslurit um hleðslu rafbíla og raflagnir.

Orka náttúrunnar framleiðir og selur rafmagn til heimila og fyrirtækja um allt land og rekur fjórar virkjanir; jarðvarmavirkjanirnar á Hellisheiði og Nesjavöllum og vatnsaflsvirkjanirnar í Andakílsá og Elliðaám. Auk rafmagnsframleiðslu framleiða jarðvarmavirkjanirnar heitt vatn fyrir hitaveituna. Orka náttúrunnar er dótturfélag Orkuveitu Reykjavíkur.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×