Erlent

Fyrsta forval á morgun: Spennan magnast í Bandaríkjunum

Birta Björnsdóttir skrifar
Spennan magnast í baráttunni um forsetaembættið í Bandaríkjunum en fyrsta forval stóru flokkana fyrir forsetakosningarnar í haust fer fram á morgun. Samkvæmt skoðanakönnunum nýtur hinn umdeildi Donald Trump mests fylgis meðal Repúblikana en mjórra er á munum milli Hillary Clinton og Bernie Sanders úr röðum Demókrata.

Fyrsta forvalið fer fram í Iowa og er úrslitanna beðið með mikilli eftirvæntingu þar sem fyrstu forkosningarnar og kjörfundirnir hafa oft ráðið úrslitum um framhaldið. Rúmlega viku síðar ættu línur síðan að skýrast enn betur, þegar úrslit koma frá New Hampshire.

Ekkert lát virðist á sigurgöngu Trump, sem mælist með vel yfir þrjátíu prósenta fylgi í röðum repúblikana. Sá sem kemur næstur honum er Ted Cruz, sem mælist með um 26 prósent í Iowa en nær ekki nema 12 prósenta fylgi í New Hampshire.

Bandaríska blaðið New York Times lýsti svo í gær yfir stuðningi við John Kasich, ríkisstjóra í Ohio, og segir hann eina trúverðuga kostinn úr röðum Repúblikana. Kasich hefur þó ekki mælst með mikið fylgi hingað til.

Bernie Sanders veitir Hillary Clinton, sem lengi vel þótti eiga tilnefningu vísa, harða samkeppni.Vísir/EPA
Sanders veitir Clinton samkeppni

Hillary Clinton, sem þótti lengi vel eiga tilnefningu vísa fyrir hönd Demókrata, mætir nú harðnandi samkeppni frá mótframbjóðanda sínum Bernie Sanders og mjótt er á munum. Sanders mælist með um 45 prósenta stuðning en Clinton með 47 til 48 prósent í heildina. Sanders virðist þó hafa öruggt forskot í New Hampshire, þar sem haldnar verða forkosningar þriðjudaginn 9. febrúar. Þar mælist Sanders með nærri 54 prósent en Clinton tæplega 40 prósent.

Notkun Clinton á persónulega tölvupóstfangi sínu þegar hún sinnti starfi utanríkisráðherra heldur áfram að valda umtali. Í vikunni var upplýst að hluti þeirra tölvupósta sem innihalda háleynileg skjöl komi ekki til með að vera gerðir opinberir, líkt og áður hafði verið lofað. Þessi ákvörðun mældist illa fyrir í herbúðum Clinton, þar sem því er ítrekað haldið fram að hún hefi ekkert að fela og að skjölin hafi ekki verið flokkuð sem háleynileg þegar þau fóru um póstfang Hillary.

New York Times hefur lýst yfir stuðningi við Clinton, en blaðið studdi hana jafnframt í baráttunni við Barack Obama á sínum tíma. Á meðan fylkja netverjar sér um Bernie Sanders og hafa undanfarið safnað um 130 milljónum króna í kosningasjóð fyrir öldungardeildarþingmanninn.


Tengdar fréttir

Sanders leiðir naumlega í Iowa

Bernie Sanders mælist nú með fjögurra prósentustiga forskot á Hillary Clinton í Iowaríki. Íbúar Iowa kjósa á mánudag og er það fyrsta ríkið til að kjósa í forkosningum um hver verður forsetaframbjóðandi demókrataflokksins í Bandaríkjunum.

Colbert stýrði kappræðum Trump og Trump

Stephen Colbert sagðist boða til kappræðnanna þar sem Trump hafi ákveðið að hætta þátttöku í kappræðum Repúblikana á Fox sjónvarpsstöðinni á fimmtudaginn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×