Glamour

Fyrsta forsíða ítalska Vogue eftir andlát Franca Sozzani

Ritstjórn skrifar
Sérstök en flott forsíða.
Sérstök en flott forsíða. Mynd/Skjáskot
Eftir að fyrrum ritstjóri ítalska Vogue, Franca Sozzani, lést rétt fyrir jól hefur verið beðið eftir fyrsta tölublaðinu undir nýrri ritstjórn Emanuele Fernati. Fyrsta forsíðan hefur nú litið dagsins ljós en það er nokkuð ljóst að hún er ólík því sem við erum vön á forsíðum tískutímarita. 

Eins og má sjá hér fyrir neðan er vefverslunar þema á forsíðunni. Steven Meisel myndaði forsíðuþáttinn sem sýnir mynd af fyrirsætu sem klæðist Armani og við hliðina á henni stendur "Add To Cart". 

Í gegnum tíðina hefur ítalska Vogue, undir stjórn Franca, brotið blað í sögu tískuheimsins og það virðist sem að Emanuele ætli einnig að láta til sín taka. 






×