Leikjavísir

Fyrrverandi varnarmálaráðherra gaf út tölvuleik

Samúel Karl Ólason skrifar
Frá 2008 þegar Rumsfeld var varnarmálaráðherra Bandaríkjanna.
Frá 2008 þegar Rumsfeld var varnarmálaráðherra Bandaríkjanna. Vísir/EPA/WSC Solitaire
Hinn 83 ára gamli Donald Rumsfeld er ekki við eina fjölina felldur. Hann er fyrrverandi varnarmálaráðherra Bandaríkjanna, ráðherra í þremur ríkisstjórnum og stórt nafn í lyfjabransanum. Nú er Rumsfeld einnig tölvuleikjaframleiðandi.

Um er að ræða sérstaka og erfiða útgáfu af Solitaire sem Winston Churchill er sagður hafa spilað á tímum seinni heimstyrjaldarinnar til að æfa kænsku. Þar sem Rumsfeld kann ekki forritun þurftu aðrir að kóða hann. Hins vegar lagði Rumsfeld línurnar með því að lesa skipanir til forritaranna á diktafón.

Sjálfur lærði hann þessa útgáfur Solitaire árið 1973 þegar hann var sendiherra Bandaríkjanna til NATO. Belgíski sendiherrann, André de Staercke, kenndi honum kapalinn en sjálfur lærði hann leikinn frá Churchill sjálfum. Frekari upplýsingar fékk Rumsfeld úar skjölum Churchill.

Kapallinn er spilaður með tveimur stokkum og á tíma.

Leikinn má finna hér á iTunes. Leikurinn er ókeypis en spilurum er boðið að eyða fé í leiknum fyrir nýja spilunarmöguleika. Hann er kominn út fyrir snjalltæki sem keyra á stýrikerfi Apple, en ekki fyrir Android.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×