Viðskipti innlent

Fyrrverandi ráðgjafi Davids Cameron vill úrsögn Breta

Sæunn Gísladóttir og Þórgnýr Einar Albertsson skrifa
David Cameron forsætisráðherra fer víða þessa dagana til að skýra stöðuna.
David Cameron forsætisráðherra fer víða þessa dagana til að skýra stöðuna. Nordicphotos/AFP
Fjárfestirinn og milljarðamæringurinn George Soros sagði í gær að ef af brotthvarfi Breta úr Evrópusambandinu, Brexit, yrði gæti breska pundið lækkað um að minnsta kosti fimmtán prósent og mögulega meira en tuttugu prósent.

Flest áhrifafólk á Bretlandi lætur nú í sér heyra vegna þjóðaratkvæðagreiðslunnar um Brexit sem fer fram á morgun. Til að mynda sagði Steve Hilton, fyrrverandi ráðgjafi Davids Cameron, forsætisráðherra Bretlands, að hann hefði sagt forsætisráðherranum árið 2012 að engin leið væri að standa við kosningaloforð sem Cameron gaf fyrir þingkosningarnar í fyrra um að innflytjendum yrði fækkað niður fyrir hundrað þúsund á ári. Þetta sagði Hilton í viðtali við BBC í gær. Cameron gaf einnig sams konar loforð fyrir kosningarnar árið 2010.

Hilton sagði einu leiðina til þess að ná þessu markmiði vera aðskilnað Bretlands frá Evrópusambandinu, Brexit. „Ráðgjafar sögðu okkur að svo lengi sem við værum í Evrópusambandinu gætum við ekki stýrt innflutningi. Þess vegna tel ég nauðsynlegt að við förum úr sambandinu,“ sagði Hilton sem berst nú fyrir Brexit með samtökunum Vote Leave.

Auk hruns á gengi pundsins búa fjárfestar sig einnig undir það að hlutabréfaverð geti lækkað um tíu prósent á hlutabréfamarkaðnum í Lundúnum. Gengi hlutabréfa og pundsins hefur hvort tveggja lækkað í aðdraganda kosninganna, sér í lagi eftir að skoðanakannanir hafa sýnt aukið fylgi við útgöngu úr sambandinu.

Þá birtu aðstoðarskólastjórar 96 háskóla á Bretlandi opið bréf til Breta þar sem þjóðin var hvött til að kjósa með áframhaldandi veru innan sambandsins. „Okkar trú er sú að aðskilnaður frá Evrópu skapi erfitt andrúmsloft fyrir fjárfestingu í menntun og rannsóknum,“ segir í bréfinu. 








Fleiri fréttir

Sjá meira


×