Innlent

Fyrrverandi emírinn í Katar látinn

Atli Ísleifsson skrifar
Khalifa bin Hamad Al Thani.
Khalifa bin Hamad Al Thani. Vísir/AFP
Fyrrverandi þjóðhöfðingi Katar, emírinn Khalifa bin Hamad Al Thani, er látinn, 86 ára að aldri.

Hann stýrði landinu frá 1972 til 1995 þegar hann hrökklaðist frá völdum eftir valdarán sonar hans, Hamad bin Khalifa Al Thani.

Sá er faðir núríkjandi emírsins í Katar, Tamim.

Þriggja daga þjóðarsorg hefur verið lýst yfir í landinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×