Innlent

Fyrrverandi eiginmaður Kamilu dæmdur í nálgunarbann

Stefán Ó. Jónsson skrifar
Mál Kamilu og fyrrverandi eiginmanns hennar vakti mikla athygli.
Mál Kamilu og fyrrverandi eiginmanns hennar vakti mikla athygli. myndir/Rúv
Hæstiréttur staðfesti í dag úrskurð Héraðsdóms Reykjavíkur þar sem fyrrverandi eiginmaður Kamilu Modzelewska var gert að sæta nálgunarbanni í sex mánuði.

Honum er meinað að koma á eða í námunda við heimili Kamilu og barna þeirra á svæði sem afmarkast af 50 metrum.  Jafnframt er lagt bann við því að maðurinn veiti Kamilu og börnum þeirra eftirför, nálgist þau á almannafæri eða setji sig í samband við þau með öðrum hætti.

Kastljós hafði mál Kamilu til umfjöllunar í þætti sínum þann 31. ágúst síðastliðinn og vakti það mikla athygli. Þar var áreiti fyrrverandi eiginmanns hennar reifað en hann hefur margoft brotið á þeim þremur nálgunarbönnum sem Kamila hefur fengið gegn honum.

Þegar þau bjuggu saman veittist maðurinn oft harkalega að Kamilu, til að mynda hafi hún verið svo bólgin og marin í andliti að hún var frá vinnu í heila viku. Það var þegar hún gekk með eldra barn þeirra. 

Þá hefur hann valdið margskonar spjöllum á eigum Kamilu. Til að mynda kveikti hann í bíl hennar fyrir utan heimili Kamilu í Mosfellsbæ þann 1. apríl síðastliðinn. Atvikið náðist á öryggismyndavél sem Kamila hafði komið upp vegna ótta við fyrrverandi eiginmann sinn.

Sjá einnig:
Hefur búið við stanslausar hótanir frá fyrrverandi eiginmanni í þrjú ár

Í úrskurði Héraðsdóms Reykjavíkur kemur fram að síðan mál Kamilu komst í kastljós fjölmiðlanna hafi maðurinn í tvígang  áreitt hana á vinnustað hennar en Kamila starfar á leikskóla. Þangað kom maðurinn og var með „truflandi hegðun“ eins og það er orðað. Tók hann meðal annars myndir á lóðinni af börnum og starfsfólki, Kamilu þar með talinni.

Samkvæmt upplýsingum lögreglu hafi starfsfólk og nokkrir foreldrar lýst yfir áhyggjum sínum um öryggi barna sinna og að maðurinn hafi ögrað umhverfinu með hátterni sínu.

Í úrskurðinum segir einnig að lögreglunni þyki ljóst að Kamilu stafi ógn af fyrrverandi eiginmanni sínum og að hún telji „ekki sennilegt að friðhelgi hennar og barna hennar verði vernduð með öðrum og vægari hætti eins og sakir standa.“


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×