Innlent

Fyrrum verkalýðsforkólfur segir samningsdrög sigur fyrir atvinnurekendur

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Björn Grétar Sveinsson segir samningsdrögin ekki upp á marga fiska.
Björn Grétar Sveinsson segir samningsdrögin ekki upp á marga fiska. Vísir
Björn Grétar Sveinsson, fyrrum formaður Verkamannasambands Íslands, er ekki sáttur við þau drög að samningi sem VR og Flóabandalagið hafa komist að samkomulagi við Samtök atvinnulífsins. Samningurinn felur meðal annars í sér 25 þúsund króna launahækkun fyrir félagsmenn frá 1. maí síðastliðnum.

Drögin voru send fjölmiðlum á níunda tímanum í gærkvöldi og er ljóst að sitt sýnist hverjum meðal félagsmanna VR um samninginn sem reikna má með að verði kosið um í kjölfarið. Um 58% félagsmanna samþykktu verkfallsaðgerðir í kosningu á dögunum. Stefnt er að því að ljúka kjaraviðræðum í vikunni en unnið er að útfærslu ýmissa atriða í samningnum.

Fjölmiðlar greindu frá samningsdrögunum í gær og segir Björn Grétar í athugasemdakerfi við frétt DV að um sigur vinnuveitenda sé að ræða verði samningurinn samþykktur óbreyttur.

„Þetta er tekjutrygginga samningur, ekki sú hækkun á taxta sem kröfur landsbyggðarfélaganna snúast um,“ segir Björn Grétar sem var formaður VMSÍ í níu ár og gjaldkeri sambandsins þar á undan. Hann hætti störfum fyrir sambandið árið 2000.

„Þetta er sigur atvinnurekenda ef fer fram sem horfir.“

Launahækkanir skiptast samkvæmt samningsdrögum svona:

Þann 1. maí þessa árs munu launataxtar hækka um 25 þúsund krónur. Byrjunarlaun afgreiðslufólks hækka að auki um kr. 3.400. Launaþróunartrygging annarra en þeirra sem taka laun samkvæmt töxtum verður 7,2 prósent fyrir laun að upphæð 300 þúsund krónur eða lægri, en fer svo stiglækkkandi með hærri tekjum. Launaþróunartryggingin verður aldrei lægri en þrjú prósent.

Þann 1. maí 2016 verður launaþróunartrygging 5,5 prósent, að lágmarki fimmtán þúsund krónur. Viðmiðunartímabil er 1. júní 2015 til 30. apríl 2016.

Þann 1. maí 2017 munu launataxtar hækka um 4,5 prósent, byrjunarlaun afgreiðslufólks hækka um 1.700 krónur að auki og almenn hækkun verður þrjú prósent.

Þann 1. maí 2018 munu launataxtar svo hækka um þrjú prósent og almenn hækkun verður tvö prósent, miðað við átta mánuði.

Lægstu taxtar VR hækka um 31,1 prósent á samningstímanum.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×