Körfubolti

Fyrrum þjálfari Stólanna þjálfari ársins í Danmörku

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Martin gerði góða hluti á Króknum.
Martin gerði góða hluti á Króknum. vísir/auðunn
Israel Martin hefur verið kosinn þjálfari ársins í dönsku 1. deildinni í körfubolta.

Martin þjálfar lið Bakken Bears en hann þjálfaði Tindastól í Domino's deild karla á síðasta tímabili.

Spánverjinn náði frábærum árangri með Stólanna og kom nýliðunum alla leið í lokaúrslit þar sem þeir töpuðu fyrir KR.

Eftir tímabilið var Martin kosinn þjálfari ársins í Domino's deildinni á uppskeruhátíð KKÍ. Hann hefur því verið kosinn þjálfari ársins tvö ár í röð í tveimur mismunandi löndum.

Bakken Bears endaði í 2. sæti dönsku deildarinnar í vetur og er komið alla leið í lokaúrslit.

Birnirnir hans Martin eru 2-1 undir gegn Horsens en fjórði leikur liðanna stendur nú yfir.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×