Handbolti

Fyrrum þjálfari Arons tekur við Kolding

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Ortega er hann stýrði Veszprém.
Ortega er hann stýrði Veszprém. vísir/afp
Danska meistaraliðið KIF Kolding fær nýjan þjálfara þegar EM í Póllandi verður yfirstaðið.

Kolding er búið að semja við spænska þjálfarann Antonio Carlos Ortega og tekur hann við liðinu þann 1. febrúar næstkomandi.

Ortega var síðast þjálfari hjá ungverska liðinu Veszprém, sem Aron Pálmarsson leikur með, en var óvænt rekinn þaðan eftir að liðið gerði jafntefli í fyrsta leik sínum í Meistaradeildinni.

Forráðamenn ungverska liðsins voru greinilega ekki búnir að hugsa það mál til enda þar sem aðstoðarmaður Ortega er enn að þjálfa liðið.

Kolding ætlar sér stóra hluti á næstu árum og samdi við Ortega fram á sumarið 2019.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×