Erlent

Fyrrum ríkisstjóri New York býður sig fram til forseta

Atli Ísleifsson skrifar
Hinn 69 ára George Pataki gegndi embætti ríkisstjóra New York á árinum 1995 til 2006.
Hinn 69 ára George Pataki gegndi embætti ríkisstjóra New York á árinum 1995 til 2006. Vísir/AP
George Pataki, fyrrum ríkisstjóri New York ríkis, hefur tilkynnt að hann bjóði sig fram til að verða frambjóðandi Repúblikanaflokksins í forsetakosningunum í Bandaríkjunum á næsta ári.

Hinn 69 ára Pataki, sem gegndi embætti ríkisstjóra á árinum 1995 til 2006, birti myndband á heimasíðu sinni þar sem hann tilkynnir um framboðið. Hann hyggst halda kosningafund í Exeter í New Hampshire síðar í dag.

Sjö manns hafa áður tilkynnt um framboð í Repúblikanaflokknum, eða þau Ben Carson, Ted Cruz, Carly Fiorina, Mike Huckabee, Rand Paul, Marco Rubio og Rick Santorum.


Tengdar fréttir

Huckabee býður sig aftur fram til forseta

Mike Huckabee, fyrrum ríkisstjóri Arkansas, tilkynnti í dag að hann bjóði sig fram til að verða frambjóðandi Repúblikana í forsetakosningunum í Bandaríkjunum á næsta ári.

Rand Paul býður sig fram til forseta

Bandaríski öldungadeildarþingmaðurinn vill verða frambjóðandi Repúblikana í bandarísku forsetakosningunum á næsta ári.

Hillary og repúblikanarnir

Þótt hálft annað ár sé til forsetakosninga eru fyrstu frambjóðendurnir komnir í startholurnar. Hillary Clinton tilkynnti framboð sitt í vikunni og ekki er sjáanlegt enn að aðrir demókratar geti komið í veg fyrir að hún verði forsetaefni flokksins.

Marco Rubio vill verða forseti

Marco Rubio, öldungadeildarþingmaður Flórída, hefur tilkynnt að hann bjóði sig fram til að verða forsetaefni Repúblikana.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×