Innlent

Fyrrum nemendur í Landakotsskóla geti fengið sanngirnisbætur

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Felur frumvarpið það í sér að fyrrverandi nemendur Landakotsskóla geti krafist sanngirnisbóta frá ríkinu í samræmi við það sem fram kom í skýrslu rannsóknarnefndar kaþólsku kirkjunnar á Íslandi.
Felur frumvarpið það í sér að fyrrverandi nemendur Landakotsskóla geti krafist sanngirnisbóta frá ríkinu í samræmi við það sem fram kom í skýrslu rannsóknarnefndar kaþólsku kirkjunnar á Íslandi. Vísir/Hörður Sveinsson
Sex þingmenn úr öllum stjórnmálaflokkum á Alþingi hafa lagt fram frumvarp um breytingu á lögum sem snúast um sanngirnisbætur fyrir misgjörðir á stofnunum og heimilum á vegum hins opinbera.

Felur frumvarpið það í sér að fyrrverandi nemendur Landakotsskóla geti krafist sanngirnisbóta frá ríkinu í samræmi við það sem fram kom í skýrslu rannsóknarnefndar kaþólsku kirkjunnar á Íslandi. Þar var fjallað um viðbrögð og starfshætti þeirrar sömu kirkju vegna ásakana um kynferðisbrot og aðrar misgjörðir presta og annarra starfsmanna kirkjunnar.

Samkvæmt núgildandi lögum er ráðherra aðeins heimilt að leggja skýrslu nefndar um starfsemi vist-og meðferðarheimila til grundvallar því hvort að krafa um sanngirnisbætur verði tekin til meðferðar eða ekki.

Frumvarpið sem þingmennirnir leggja nú fram felur það í sér að þessu verði breytt svo ráðherra geti lagt aðrar skýrslur til grundvallar kröfu um sanngirnisbætur, svo sem skýrslan rannsóknarnefndar kaþólsku kirkjunnar á Íslandi.


Tengdar fréttir

Kynna niðurstöður um rannsókn á kynferðisbrotum

Rannsóknarnefnd kaþólsku kirkjunnar á Íslandi, sem var skipuð til að rannsaka starfshætti og viðbrögð kaþólsku kirkjunnar á Íslandi vegna framkominna ásakana um kynferðisbrot eða önnur ofbeldisbrot, ætlar að kynna skýrslu sína á morgun. Kynferðisbrot innan kaþólsku kirkjunnar komust í hámæli í fyrrasumar þegar fjölmiðlar fjölluðu um ásakanir á hendur Margréti heitinni Müller, kennara við Landakotsskóla, og fleirum sem sögð eru hafa átt sér stað á síðustu öld.

Biskup bregst við skýrslu rannsóknarnefndarinnar

Í nafni Kaþólsku kirkjunnar á Íslandi sem og persónulega leitar hugur minn til allra þeirra sem telja að á sér hafi verið brotið og einnig til fjölskyldna þeirra, segir Pétur Burcher biskup kirkjunnar, í yfirlýsingu sem hann sendi frá sér. Rannsóknarnefnd um kynferðisbrot og annað ofbeldi innan kaþólsku kirkjunnar skilaði af sér skýrslu í dag. Pétur bendir á að veita verði kirkjunni, og ef til vill réttarkerfinu, nauðsynlegan tíma og ráð til að komast að niðurstöðu. Enginn hafi rétt til að kveða fyrirfram upp dóm um sekt eða sýknu manna.

Ekki hægt að svipta séra Georg Fálkaorðunni

"Við andlát þarf að skila Fálkaorðunni, það er því erfitt að svipta menn einhverju sem þeir ekki hafa,“ segir Örnólfur Thorsson forsetaritari, spurður hvort það komi til álita að svipta séra Ágúst Georg, fyrrverandi skólastjóra Landakotsskóla, Fálkaorðunni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×