Erlent

Fyrrum kona Subway-Jared segir samlokurisann hafa vitað af barnagirnd hans

Anton Egilsson skrifar
Æðstu yfirmenn Subway eiga samkvæmt fyrrum eiginkonu Jareds að hafa vitað af barnagirnd hans síðan árið 2004.
Æðstu yfirmenn Subway eiga samkvæmt fyrrum eiginkonu Jareds að hafa vitað af barnagirnd hans síðan árið 2004. Vísir/AFP
Katie McLaughlin fyrrum eiginkona Subway-Jared hefur kært samlokurisann á þeim grundvelli að æðstu yfirmenn fyrirtækisins hafi vitað af barnagirnd hans allt frá árinu 2004 án þess að aðhafast nokkuð í málinu.  CNN fjallar um málið.

Subway-Jared eða Jared Fogle eins og hann heitir réttu nafni er fyrrum talsmaður samlokufyrirtækisins Subway. Hann er hvað þekktastur fyrir að hafa einungis borðað Subway-samlokur í þeim tilgangi að grenna sig.  Var hann í nóvember síðastliðnum dæmdur í fimmtán ára fangelsi fyrir kynferðisbrot gegn börnum og vörslu barnakláms.

„Ábyrgt fyrirtæki hefði gripið til tafarlausra aðgerða strax og þau hefðu heyrt af slíkri hegðun, jafnvel þó það hefðu einungis verið ásakanir. Subway féll á hverju prófinu á fætur öðru með viðbrögðum sínum við þeim kvörtunum sem bárust til þeirra“ er meðal þess sem kemur fram í kæru Katie á hendur Subway.

Þá segir jafnframt að Katie og börn hennar hafi þurft að þola mikla tilfinningalega vanlíðan sökum þess að barnagirnd Jareds hafi ekki verið gerð opinber áður en hún giftist honum árið 2010.

Því er þá haldið fram í kærunni að Subway hafi trúað því að til að viðhalda markaðshlutdeild sinni, arðsemi og vexti fyrirtækisins skipti mannorð Jareds miklu máli. Þeir hafi því ekki leyst frá skjóðunni. Metnaður Subway fyrir söluhagnaði hafi þannig komið á kostnað Katie og barna hennar.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×