Sport

Fyrrum leikmaður Saints myrtur

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Will Smith í leik með Saints.
Will Smith í leik með Saints. vísir/getty
Stuðningsmenn NFL-liðsins New Orleans Saints syrgja í dag fyrrum varnarmann liðsins, Will Smith.

Smith var skotinn til bana á laugardagskvöld í New Orleans.

Smith var á ferð ásamt eiginkonu sinni er það var keyrt aftan á hann. Hann stígur út úr bílnum í kjölfarið og lendir í orðaskiptum við eiganda bílsins sem keyrði aftan á hann.

Sá reif að lokum upp byssu og skaut Smith nokkrum skotum. Hann skaut svo eiginkonu hans tvisvar í fótinn. Hún er á lífi en Smith lést á staðnum. Hann var 34 ára gamall.

Búið er að handtaka einn mann vegna málsins.

NFL



Fleiri fréttir

Sjá meira


×