Sport

Fyrrum forsetaframbjóðandi berst við Holyfield

Romney og Holyfield eru klárir í slaginn.
Romney og Holyfield eru klárir í slaginn. vísir/ap
Mitt Romney náði ekki að hafa betur gegn Barack Obama en spurning hvernig honum gengur gegn Evander Holyfield.

Hinn 68 ára gamli Mitt Romney mun í nótt stíga inn í hnefaleikahringinn og mæta fyrrum heimsmeistaranum Evander Holyfield.

Holyfield mun líklega ekki lemja Romney of fast enda er þetta góðgerðarbardagi. Allur ágóði rennur til samtaka sem hjálpa blindum.

Holyfield er ekkert unglamb sjálfur en er samt 16 árum yngri en Romney. Þeir eru svipaðir að hæð en Holyfield er um 15 kílóum þyngri.

Box



Fleiri fréttir

Sjá meira


×