Innlent

Fyrirtæki dæmd til fangelsisvistar?

Þau lagaákvæði sem héraðsdómur segir svo óskýr að ekki sé unnt að dæma eftir þeim eru ákvæði í hlutafélagalögum sem snúa að lánveitingum hlutafélaga til tengdra aðila.



Í 104. grein hlutafélagalaga segir að hlutafélagi sé óheimilt að veita hluthöfum, stjórnarmönnum eða framkvæmdastjórum félagsins lán, sem og að setja fyrir þá tryggingu. Þó eru undanskilin venjuleg viðskiptalán.

Refsing fyrir brot á þessum lögum eru sektir eða fangelsi allt að tveimur árum. Saksóknari hefur túlkað lögin þannig að einstaklingar beri ábyrgð, en verjendur voru á öðru máli. Héraðsdómur hefur nú komist að sömu niðurstöðu og verjendur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×