Glamour

Fyrirsætur Marc Jacobs með dredda á tískupallinum

Ritstjórn skrifar
Irina Shayk, Bella Hadid, Kendall Jenner og Gigi Hadid.
Irina Shayk, Bella Hadid, Kendall Jenner og Gigi Hadid. Glamour/Getty
Fatahönnuðurinn Marc Jacobs var með þeim síðustu til að sýna á tískuvikunni í New York og gerði það heldur betur með stæl. Eitt af senuþjófunum í sýningunni hans var hárgreiðsla fyrirsætnana en þær skörtuðu allar marglituðum dreddum hnýttum í hnút upp á höfðinu. 

Þessi hárgreiðsla hefur hingað til ekki átt upp á pallborðið í tískuheiminum en ef einhver getur breytt því þá er það Marc Jacobs. Það var óneitanlega skemmtilegt að sjá fyrirsæturnar frægu Kendall Jenner og Bellu og Gigi Hadid með dredda í hárinu en þær báru það með sóma. 

Ætli þetta verði hártrend næsta sumars?

Irina Shayk.
Bella Hadid.
Kendall Jenner.
Gigi Hadid.
Joan Smalls.
Adriana Lima.





×