Glamour

Fyrirsætur fjölmenntu í eftirpartýið eftir sýningu Victoria´s Secret

Ritstjórn skrifar
Glamour/Getty
Það bíða margir spenntir eftir sýningu Victoria´s Secret sem að þessu sinni fór fram í Sjanghæ í Kína fyrr í dag. Frægustu fyrirsætur í heimi eru fegnar til að taka þátt í sýningunni sem alla jafna er tónlistarveisla sem og tískusýningu þar sem meðal annars mátti sjá dýrasta brjóstarhaldara í heimi frá undirfatarisanum. 

Það mátti samt ekki sjá neinu þreytumerki á fyrirsætunum eftir sýninguna sem fjölmenntu í sínu fínasta pússi í eftirpartýið - búnar að skipa yfir í galaklæði. 

Kjólarnir eru samt misflottir að okkar mati - en augljóslega vel valdir. 

Alessandra Ambrosio.
Karlie Kloss.
Sara Sampio.
Romee Strijd
Bella Hadid.
Candice Swanepoel
Devon Windsor
Lily Aldridge





×