Bíó og sjónvarp

Fyrirmynd myrkrahöfðingjans Snoke er einn af forsetum Bandaríkjanna

Birgir Olgeirsson skrifar
Myrkrahöfðinginn Snoke sem virðist stjórna öllum illmennum í Star Wars-heiminum í dag.
Myrkrahöfðinginn Snoke sem virðist stjórna öllum illmennum í Star Wars-heiminum í dag. Starwars.com
Það er lítið vitað um myrkrahöfðingjann Snoke úr nýjustu Star Wars-myndinni The Force Awakens en nú hafa starfsmenn hjá bandaríska tæknibrellufyrirtækinu Industrial Light & Magic gefið upp hver fyrirmynd hans er.

Þetta er fyrirmyndin að útliti Snoke, styttan af sextánda forseta Bandaríkjanna Abraham Lincoln.Vísir/Getty
Bandaríski miðillinn Cinema Blend ræddi við þá Rogert Guyett og Pat Tubach sem sögðu útlit Snokes fengið frá sextánda forseta Bandaríkjanna, Abraham Lincoln, það er styttunni af Lincoln sem er innan í Lincoln-minnisvarðanum í höfuðborg Bandaríkjanna, Washington

„Ímyndaðu þér að þú sér krakki og þú stendur fyrir framan Lincoln-minnisvarðann og sérð Lincoln sjálfan sitjandi í þessu stóra stól. Það eru ákveðin gæði á bak við það,“ sagði Guyett við Cinema Blend.

Því hefur verið haldið fram að fátt í Star Wars-heimi J.JAbrams, leikstjóra The Force Awakens, sé tilvjunum háð og því gæti þessi vísun í Lincoln gefið til kynna að Snoke hafi einu sinni verið mikill og góður leiðtogi sem gekk til liðs við myrku hlið máttarins. 

Ekkert er þó gefið upp í þeim efnum af þessum tæknibrellumeisturum og verða Stjörnustríðsaðdáendur að bíða eftir næstu myndum til að vita meira um Snoke.“


Tengdar fréttir

The Force Awakens orðin tekjuhæst í Ameríku

Nýjasta Star Wars myndin, The Force Awakens, er orðin tekjuhæsta kvikmynd sögunnar í Bandaríkjunum og Kanada. Áfanginn náðist á í gær þegar tekjur af miðasölu fóru yfir rúma 760 milljónir dollara en það met átti áður myndin Avatar.

Nokkrir koma til greina sem ungur Han Solo

Disney og Lucasfilm eru sagðir vera með um tólf unga leikara í huga fyrir kvikmynd um yngri ár smyglarans, sem fór Kessel leiðina á minna en tólf parsecum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×