Enski boltinn

Fyrirliðinn fær sér nýtt húðflúr sem minnir á heimahagana

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Aron Einar Gunnarsson er vel flúraður.
Aron Einar Gunnarsson er vel flúraður. vísir/getty/instagram
Aron Einar Gunnarsson, landsliðsfyrirliði Íslands í fótbolta, heldur áfram að flúra á sér skrokkinn, en hann kynnti til leiks nýtt húðflúr á Instagram-síðu sinni í dag.

Akureyringurinn er mjög stoltur af heimabæ sínum og sérstaklega þorpinu þar sem Þórsarar ráða ríkjum. Nýja flúrið er einmitt af Glerá og Glerárkirkju. Það kallar Aron heimahagana.

Aron Einar verður í eldlínunni með íslenska landsliðinu sem mætir Kasakstan ytra 28. mars í undankeppni EM 2016.  Hann hefur spilað vel með Cardiff í B-deildinni á Englandi og byrjað nánast hvern einasta leik.

Næsta verkefni Aron Einars og strákanna í Cardiff er leikur á móti Jóhanni Berg Guðmundssyni og félögum í Cardiff á morgun.

Glerá og glerárkirkja #home @xthebravex

A photo posted by Aron Gunnarsson (@arongunnarsson) on




Fleiri fréttir

Sjá meira


×