Handbolti

Fyrirliði Spánverja ekki með í kvöld

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Raúl Entrerríos horfir á leikinn gegn Íslandi í kvöld úr stúkunni.
Raúl Entrerríos horfir á leikinn gegn Íslandi í kvöld úr stúkunni. vísir/getty
Raúl Entrerríos, fyrirliði spænska handboltalandsliðsins, verður ekki með í leiknum gegn Íslandi í kvöld.

Entrerríos er meiddur í nára og missti af tveimur síðustu vináttulandsleikjum Spánverja fyrir HM.

Entrerríos er ekki í 16-manna hópi Spánar sem hefur leik á HM en ekki er loku skotið fyrir það að hann geti spilað með þegar á mótið líður.

Entrerríos, sem er 35 ára leikstjórnandi hjá Barcelona, hefur leikið 216 landsleiki og skorað 480 mörk.

Bróðir hans, Alberto, lék einnig lengi með spænska landsliðinu og var fyrirliði liðsins þegar það varð heimsmeistari á heimavelli 2013.

Leikur Íslands og Spánar hefst klukkan 19:45. Hægt verður að fylgjast með honum í beinni textalýsingu á Vísi.


Tengdar fréttir

Aron verður ekki með á HM

Það varð ljóst nú rétt fyrir hádegi að besti leikmaður íslenska handboltalandsliðsins, Aron Pálmarsson, verður ekki með á HM í Frakklandi.

HM-pistill: Hvaða lag mun drengjakór Geirs syngja?

Það er ótrúlega áhugavert heimsmeistaramót fram undan hjá strákunum okkar. Það er svo mikið af ungum mönnum í Metz núna að þetta eru eiginlega bara drengir. Því er vel við hæfi að tala um drengjakór Geirs eins og Gaupi byrjaði á svo skemmtilega.

Bjarki: Það er ekkert að mér

Hornamaðurinn Bjarki Már Elísson tók af allan vafa um það hvort hann myndi spila gegn Spánverjum á morgun er hann ræddi við blaðamann Vísis nú seinni partinn.

Omeyer í ham í stórsigri Frakka

Frakkar áttu ekki í miklum vandræðum með að leggja Brasilíumenn að velli í upphafsleik HM 2017. Lokatölur 31-16, Frakklandi í vil.

HM-hópurinn klár | Bjarki dettur út

Geir Sveinsson hefur tilkynnt hvaða leikmenn munu hefja leik á HM í Frakklandi en fyrsti leikur Íslands er á morgun gegn Spáni.

Einar: Vona að liðið sýni mikinn karakter

Það mæðir mikið á framkvæmdastjóra HSÍ, Einari Þorvarðarsyni. Hann er nú á enn einu stórmótinu og hefur reynt þetta allt - leikmaður, þjálfari og framkvæmdastjóri. Einar fór á sitt fyrsta heimsmeistaramót árið 1981.

Ólafur: Mæti með kassann úti í þetta verkefni

"Við ætlum að ná í úrslit of ná sem bestu út úr þessu móti. Það er spennandi leikur í kvöld við Spánverja og þar ætlum við að ná í tvö stig,“ segir Ólafur Guðmundsson sem verður í stóru hlutverki í kvöld í fjarveru Arons Pálmarssonar.

Gef ungu drengjunum tækifæri

Geir Sveinsson ætlar að nýta þetta tímamótamót hjá handboltalandsliðinu til þess að byggja upp til framtíðar. Kynslóðaskiptin verða nánast kláruð á HM í Frakklandi eftir ótrúleg ár hjá gullaldarlandsliði Íslands.

Ég gef frá mér orku á vellinum

Það bíða margir spenntir eftir því að sjá hinn magnaða Janus Daða Smárason á HM en hann sýndi í æfingaleikjum fyrir mótið að hann hefur ansi margt fram að færa. Leikmaðurinn er yfirvegaður og ætlar að nýta sín tækifæri vel.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×