Fótbolti

Fyrirliði Inter: Myndi segja nei við Man Utd

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Icardi hefur engan áhuga á að fara frá Inter.
Icardi hefur engan áhuga á að fara frá Inter. vísir/getty
Mauro Icardi, fyrirliði Inter, segist ekki hafa áhuga á að fara til Manchester United.

Argentínski framherjinn hefur verið orðaður við United en hann segist vera ánægður hjá Inter og vilji taka þátt í frekari uppbyggingu liðsins.

„Mér líður mjög vel í Mílanó. Ég vil vera hérna næstu árin,“ sagði hinn 22 ára gamli Icardi sem kom til Inter frá Sampdoria 2013.

„Ég fékk nokkur tilboð þegar við vorum að ræða um framlengingu á samningi mínum við Inter en ég var búinn að gera upp hug minn.

„Ég myndi segja nei við Manchester United. Það er spennandi verkefni í gangi hjá Inter og ég vil vera hluti af því,“ bætti Icardi við.

Hann hefur skorað 10 mörk á tímabilinu en Inter er í 4. sæti ítölsku 1. deildarinnar, 11 stigum á eftir toppliði Napoli.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×