Fótbolti

Fyrirliði AC Milan úr leik í hálft ár

Guðmundur Marinó Ingvarsson skrifar
Bæði ítalska landsliðið og AC Milan munu sakna Montolivo
Bæði ítalska landsliðið og AC Milan munu sakna Montolivo vísir/getty
Riccardo Montolivo fyrirliði AC Milan verður ekki með liðinu næstu sex mánuðina eftir að hafa gengist undir krossbandsaðgerð.

Montolivo meiddist þegar Ítalía og Spánn áttust við á fimmtudaginn í undankeppni HM. Slitnaði krossband í vinstra hné og fór hann í aðgerð strax tveimur dögum seinna.

Aðgerðin þótti takast vel en ólíklegt er að hann leiki aftur á leiktíðinni þó hann gæti mögulega náð síðustu leikjum leiktíðarinnar með AC Milan í ítölsku A-deildinni en hann missir af mikilvægum leikjum Ítala í undankeppni HM í haust og í vor.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×