Innlent

Fyrirlestri Þórdísar og Tom mótmælt: „Mér finnst nauðgari vera að hagnast á nauðgun“

Tryggvi Páll Tryggvason skrifar
Mótmælendur fyrir utan Royal Festival Hall
Mótmælendur fyrir utan Royal Festival Hall Vísir
Mótmælendur mótmæltu fyrirlestri Þórdísar Elvu Þorvaldsdóttur og Tom Stranger sem haldinn var í Royal Festival Hall í London í gær. Fyrirlestur þeirra hafði verið tekinn af dagskrá ráðstefnu vegna andmæla mótmælenda og færður til gærkvöldsins. BBC greinir frá.

„Það er nauðgari í byggingunni,“ kölluðu mótmælendur fyrir utan ráðstefnusalinn á meðan þeir reyndu að meina gestum aðgang að húsinu. Mótmælendur voru vopnaðir gjallarhornum og skiltum.

Þórdís Elva og Tom hafa sem kunnugt er haldið fyrirlestra um efni bókar þeirra, Handan fyrirgefningar, sem fjallar um samskipti þeirra mörgum árum eftir að Tom nauðgaði Þórdísi Elvu hér á landi.

Fyrirlesturinn í gær átti upphaflega að fara fram á ráðstefnu í London um helgina en eftir að fjölmargar undirskriftir söfnuðust til þess að mótmæla því að að Tom fengi að stíga á svið var ákveðið að taka fyrirlesturinn af dagskrá ráðstefnunnar og halda hann í gær.

Mótmælendur eru ósáttir við það að maður sem framið hafi nauðgun fái tækifæri til þess að tjá sínar skoðanir enda gæti það rifjað upp slæmar minningar fyrir þolendur kynferðisofbeldis.

„Ég er hér vegna þess að mér finnst að nauðgari sé að hagnast á nauðgun,“ sagði Diane Langford, einn af mótmælendunum. Hún er 75 ára og var nauðgað á unga aldri.

Bók Þórdísar Elvu og Tom hefur vakið heimsathygli, ekki síst eftir að TED-fyrirlestur þeirra um efni bókarinnar var birtur. Hafa þau ferðast víða um heim með fyrirlestur sinn, meðal annars til Ástralíu þar sem Þórdís Elva var gestur í sjónvarpsþættinum Q&A. Þá er fyrirhugað að þau haldi fyrirlestur hér á landi í næstu viku.

Þá voru þau gestir í þætti Newsnight, fréttaþætti BBC, á dögunum þar sem þau ræddu bókina og þá gagnrýni sem þau hafa fengið á sig.


Tengdar fréttir

Þórdís Elva og Stranger ekki lengur á dagskrá

Aðstandendur ráðstefnunnar segjast þar með vera að bregðast við undirskriftasöfnun þar sem rúmlega tvö þúsund mann mótmæltu því að Stranger skyldi fá að vera á hátíðinni.

Vilja ekki að Stranger fái að halda erindi

Rétt rúmlega tvö þúsund undirskriftir hafa safnast í undirskriftasöfnun þar sem þess er krafist að Tom Stranger fái ekki að halda erindi á ráðstefnunni Women of the World sem hefst í Lundúnum í næstu viku.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×