Bíó og sjónvarp

Fyrir framan annað fólk í dreifingu um allan heim

Nanna Elísa Jakobsdóttir skrifar
Kvikmyndin er rómantísk gamanmynd.
Kvikmyndin er rómantísk gamanmynd.
Truenorth hefur selt dreifingarréttinn að kvikmyndinni Fyrir framan annað fólk til fyrirtækis í Þýskalandi að nafni Media Luna. Fyrirtækið sérhæfir sig í dreifingu evrópskra kvikmynda um allan heim.

Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Truenorth. Þar segir að aðstandendur myndarinnar séu í skýjunum yfir sölunni.

„Við frumsýndum myndina á Gautaborgarhátíðinni og í Berlín. Strax eftir þær sýningar var kominn mikill áhugi fyrir myndinni og nokkur sölufyrirtæki höfðu áhuga á heimsréttinum. Á endanum ákváðum við að vinna með Media Luna,” segir Kristinn Þórðarson, einn af framleiðendum myndarinnar í tilkynningu.

Kristinn Þórðarson, framleiðandi hjá Truenorth.
Samkeppni um kvikmyndina

Kvikmyndin verður kynnt á Cannes kvikmyndahátíðinni sem haldin verður í vor, 11 - 22. maí næstkomandi. Sala á myndinni fer í gang á hátíðinni. Aðstandendur segja að í kjölfarið verði myndinni dreift í kvikmyndahús, sjónvarp og myndbandaleigur um allan heim.

Í tilkynningu True North er vitnað í Idu Martins, eiganda og stofnanda Media Luna:

„Við erum mjög ánægð með að hafa fengið kvikmyndina til okkar enda var mikil samkeppni,” segir Martins.

„Fyrir framan annað fólk kom virkilega á óvart þegar við sáum hana í Berlín. Hún er bæði fyndin og einlæg, leikararnir eru frábærir og sagan gæti gerst hvar sem er í heiminum. Það er einmitt þess vegna teljum við að myndinni eigi eftir að vegna vel utan Íslands," segir Ida Martins ennfremur. Media Luna var stofnað fyrir 25 árum af Idu Martins og er þetta í fyrsta skipti sem fyrirtækið tekur að sér sölu á íslenskri kvikmynd.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×