Íslenski boltinn

Fylkismenn sömdu við Króata

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Ásmundur Arnarsson, þjálfari Fylkis.
Ásmundur Arnarsson, þjálfari Fylkis. Vísir
Fylkir hefur gengið frá samningum við króatíska varnarmanninn Tonci Radovnikovic. Hann gerði samning út tímabilið eftir að hafa verið á reynslu hjá félaginu síðustu daga.

„Ég komst í samband við hann í gegn Stanislav Vidakovic, sem lék hjá mér í Fjölni á sínum tíma og er nú orðinn umboðsmaður. Það var reyndar Marinko Skaricic, sem var einnig í Fjölni í sínum tíma, sem benti mér á Stanislav. Þetta er því orðin skemmtileg króatísk keðja,“ sagði Ásmundur Arnarsson, þjálfari Fylkis.

Hann segir að það hafi þurft að fylla í skarð Agnars Braga Magnússonar, sem neyddist til að leggja skóna á hilluna í vetur vegna meiðsla.

„Honum var ætlað að berjast um miðvarðastöðurnar ásamt Ásgeiri Eyþórssyni og Kristjáni Haukssyni. Við fengum því Tonci. Hann kom með okkur í æfingaferðina og okkur líst vel á það sem við höfum séð.“

Radovnikovic er 26 ára gamall og spilaði síðast með NK Solin sem féll úr króatísku B-deildinni í fyrra. Hann er eini nýi erlendi leikmaðurinn sem Fylkir hefur fengið á undirbúningstímabilinu en allir þrír útlendingarnir sem léku með liðinu í fyrra eru farnir - Andrew Sousa, Sadmir Zekovic og Ryan Maduro.

Fylkismenn voru nokkuð gagnrýndir fyrir þá erlendu leikmenn sem þeir fengu í fyrra en einn þeirra sem að gagnrýndi félagið var Ásgeir Börkur Ásgeirsson, sem er nú kominn aftur heim í Árbæinn eftir dvöl í Svíþjóð.

„Við reynum alltaf að vanda okkur eins og hægt er í þessum efnum. Einn af þremur erlendu leikmönnum okkar nýttist okkur í fyrra og það er okkur víti til varnaðar,“ segir Ásmundur.

„Annars snýst þetta að mínu mati um að búa til gott fótboltalið, hvort sem það er með útlendingum eða íslenskum leikmönnum. Við höfum yfirleitt verið það lið sem er með hvað flesta uppalda leikmenn og lægsta meðalaldurinn. Samt hefur þessi verið þessi umræða um útlendinga hjá okkur sem mér finnst skrýtin.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×