Sport

Fylgstu með jarðarför Muhammad Ali í beinni

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Muhammad Ali 1942-2016.
Muhammad Ali 1942-2016. Vísir/Getty
Hnefaleikagoðsögnin og mannvinurinn Muhammad Ali er borinn til grafar í Louisville í dag og stór hluti heimsins mun fylgjast með.

Muhammad Ali lést á föstudaginn var en hann var 74 ára gamall. Hann er einn frægasti og virtasti íþróttamaður allra tíma og margfaldur heimsmeistari í sinni íþrótt. Hann stór persónuleiki, skemmtilegur karakter og einstök manneskja.

Muhammad Ali, sem fæddist Cassius Marcellus Clay 17. janúar 1942, vann 56 af 61 bardögum á sínum ferli sem náði yfir meira en tvo áratugi. Hann varð þrisvar sinnum krýndur heimsmeistari og vann einnig gull á Ólympíuleikum.

Barátta hans fyrir mannréttindum og jafnrétti eftir að ferlinum lauk verður seint metin til fulls og þá glímdi hann við Parkinson síðustu þrjá áratugi ævi sinnar.

Tugir þúsunda munu safnast saman á götum Louisville til að fylgjast með og meðal gesta á minningarathöfninni er mikið af frægu fólki og fyrirmönnum sem þekktu og elskuðu Muhammad Ali fyrir öll þau góðu mál sem hann barðist fyrir ekki síst eftir að hanskarnir voru komnir upp á hillu.

Will Smith og boxarinn Lennox Lewis eru meðal kistubera Muhammad Ali og þá munu þeir Bill Clinton, fyrrum forseti Bandaríkjanna, og grínistinn Billy Crystal báðir flytja eftirmæli um Muhammad Ali í minningarathöfninni.

Bílalestin með kistu Muhammad Ali mun fara í gengum Louisville og þar á meðal framhjá æskuheimili hans en enda að lokum við Cave Hill kirkjugarðinn þar sem hann verður borinn til grafar.

The New York Times er meðal þeirra fjölmiðla sem býður upp á það að fylgjast með jarðaför Muhammad Ali í beinni á netinu og hér fyrir neðan má sjá myndband þeirra frá athöfninni.

Enn neðar má líka sjá útsendingu FOX 10 sjónvarpstöðvarinnar í Phoenix frá viðburðinum.

Box



Fleiri fréttir

Sjá meira


×