Viðskipti innlent

Fylgjast þarf með fasteignalánum

Hafliði Helgason skrifar
 Fasteignaverðtryggð lán lífeyrissjóða til heimila og fyrirtækja jukust um 15,5% á fyrri hluta þessa árs og nema nú 240 milljörðum króna.
Fasteignaverðtryggð lán lífeyrissjóða til heimila og fyrirtækja jukust um 15,5% á fyrri hluta þessa árs og nema nú 240 milljörðum króna. vísir/Vilhelm
Mikilvægt er að fylgjast vel með auknum umsvifum lífeyrissjóða í útlánum til heimila. Þetta er meðal þess sem kemur fram í grein tveggja sérfræðinga Fjármálaeftirlitsins og birtist í Fjármálum, vefriti FME. Greinarhöfundar benda einnig á að færsla húsnæðislána frá bönkum til lífeyrissjóða kunni að auka áhættu lánasafns þeirra. Fasteignaverðtryggð lán lífeyrissjóða til heimila og fyrirtækja jukust um 15,5% á fyrri hluta þessa árs og nema nú 240 milljörðum króna.

Loftur Hreinsson, sérfræðingur í áhættugreiningu, og María Finnsdóttir, sérfræðingur í fjárhagslegu eftirliti, rita greinina. Höfundar segja lífeyrissjóðina bundna af lögum um hámarksveðhlutföll og eignadreifingu en önnur stjórntæki hafi ekki tilætluð áhrif til að hamla útlánavexti þeirra. Sveiflujöfnunarauki sem lagður er á fjármálastofnanir hafi til að mynda ekki áhrif á lífeyrissjóði. Greinarhöfundar taka þó fram að hegðun lífeyrissjóða til þessa hafi ekki gefið tilefni til að hafa áhyggjur af áhrifum á fjármálastöðugleika.

Fram kemur í greininni að undanfarin ár hafi lífeyrissjóðir aukið við óhefðbundnar fjárfestingar, en erfitt sé að meta áhættu vegna slíkra þátta.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×