Innlent

Fylgja eftir ábendingum vegna næturklúbbsins Shooter

Kristjana Guðbrandsdóttir skrifar
Lögregla fylgist með starfsemi næturklúbbsins Shooter í Austurstræti og aðstæðum útlenskra kvenna sem vinna á staðnum. En ábendingar hafa borist lögreglu um kjör þeirra og aðstæður.

Um herraklúbb“ er að ræða samkvæmt heimasíðu staðarins sem segist bjóða upp á „bestu fullorðinsskemmtun“ í Reykjavík. Aldís Hilmarsdóttir segir lögreglu hafa borist ábendingar um meint vafasöm atvik í tengslum við rekstur staðarins og þær ábendingar séu til skoðunar hjá lögreglu. Hún vill ekki staðfesta að grunur sé um vændi á staðnum.

„Við höfum fengið ábendingar um þessa starfsemi og höfum tekið þær til skoðunar og erum að skoða þær ábendingar og upplýsingar sem við höfum?“

En hvers konar upplýsingar? Og hvers konar atvik?

„Ég get ekki tjáð mig um það að svo stöddu. Það varðar bæði rekstur staðarins og meintan íverustað stúlknanna.“

Dagblaðið Stundin greindi frá því í dag að skemmtistaðurinn væri til rannsóknar hjá lögreglu vegna gruns um milligöngu með vændi. Í frétt um málið er greint frá því að konur sem starfa á klúbbnum búi í húsi í austurborginni og rætt við nágranna sem eru uggandi vegna þess sem þeir hafa orðið vitni að fyrir utan húsið.

Við fórum að umræddu húsi í austurborginni. Kona sem kom til dyra er starfsmaður á klúbbnum og sýndi vegabréf sitt til þess að sýna að hún væri frjáls ferða sinna. Hún vildi ekki gefa uppi hversu margar konur dvelja í húsinu.

Hún sagðist orðin þreytt á umfjöllunum fjölmiðla. Það hefði komið fram að ekkert vændi væri stundað á klúbbnum.

„Það er ekkert í gangi, veistu hvað margir íslenskir menn koma þangað og spyrja um kynlíf, og allir neita þeim um það. Af hverju talið þið ekki saman?“

Er ekkert slíkt í gangi á þessum stað?

„Nei og ég verð forviða þegar ég heyri þessa andskotans vitleysu.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×