Fylgistap hjá Framsókn Brjánn Jónasson skrifar 24. apríl 2013 06:00
Sjálfstæðisflokkurinn og Framsóknarflokkurinn gætu myndað meirihluta með 36 þingmönnum yrði kosið í dag samkvæmt niðurstöðum skoðanakönnunar Fréttablaðsins og Stöðvar 2 sem gerð var í gærkvöldi og fyrrakvöld. Framsókn tapar fylgi frá könnun Fréttablaðsins og Stöðvar 2 sem gerð var í síðustu viku. Flokkurinn mælist nú með stuðning 25,9 prósenta kjósenda og 19 þingmenn. Sjálfstæðisflokkurinn tapar einnig fylgi frá síðustu könnun og mælist með 23,8 prósent og 17 þingmenn. Vinstri græn auka við fylgi sitt frá síðustu könnun og mælast nú með 10,4 prósent atkvæða og sjö þingmenn. Stuðningur við Samfylkinguna stendur í stað, 13,3 prósent ætla að kjósa flokkinn sem myndi skila honum 10 þingmönnum.Björt framtíð og Píratar eru eins og áður einu nýju framboðin sem koma mönnum á þing. Björt framtíð bætir í milli kannana og er nú með stuðning 8,1 prósents kjósenda og sex þingmenn. Um 6,3 prósent ætla að kjósa Pírata, örlítið fleiri en í síðustu könnun, og fengju þeir samkvæmt þessu fjóra þingmenn. Þrátt fyrir að fá samanlagt tæpan helming atkvæða fengju Framsóknarflokkurinn og Sjálfstæðisflokkurinn ríflegan meirihluta þingmanna, enda fá flokkar sem ekki koma mönnum á þing rúmlega tíu prósent atkvæða.
Kosningar 2013 Mest lesið „Breiðholt mesta fátæktargildra landsins“ Innlent Sigríði þykir ólíklegt að hún nái undirskriftum Innlent Útlagar spreyjaðir gylltir Innlent Tíu sektaðir vegna notkunar nagladekkja Innlent „Ákveðnar efasemdir um ákveðna þætti“ Innlent Dómi Harvey Weinstein snúið við Erlent Helga Þórisdóttir komin með lágmarksfjölda meðmæla Innlent Tveir létust í banaslysi í Eyjafirði Innlent Spaðar Rauðu myllunnar hrundu til jarðar í nótt Erlent Segir borgarstjóra óttalegan vettling Innlent Fleiri fréttir Glæsileg þjóðbúningamessa á Hvolsvelli Ögurstund og opnunarhóf hjá frambjóðendum Forsetaslagurinn, leit að eiganda fjármuna og rjómablíða Fjölbreytt verkefni hjá björgunarsveitum í dag Útlagar spreyjaðir gylltir Helga Þórisdóttir komin með lágmarksfjölda meðmæla Sinueldur í Reykjanesbæ Pétur Einarsson leikari látinn Kólnar á öllu landinu eftir óvenjugóðan fyrsta sumardag „Ákveðnar efasemdir um ákveðna þætti“ Fimm teravött af orku og 20 milljarðar í samgöngur Seltjarnarnesbær gengur frá sölu á Safnatröð Sigríði þykir ólíklegt að hún nái undirskriftum Umdeilt frumvarp, íslenskan og sumarveðrið Eiríkur og Bjarni takast á um nefnd um íslenska tungu Ræða mest málefni íslenskunnar á fundum enskumælandi ráðs Tíu sektaðir vegna notkunar nagladekkja „Breiðholt mesta fátæktargildra landsins“ Segir borgarstjóra óttalegan vettling Vilja taka upp auðlindagjald að hætti Norðmanna „Dapurlegt“ að andstæðingar bólusetninga hafi svo mikil áhrif Stefnir í sólríkan og hlýjan sumardag fyrsta víða um land Eigendur sjókvíaeldis þurfa ekki að greiða auðlindagjald Tveir létust í banaslysi í Eyjafirði Veturinn sá kaldasti síðan 1999 Vill rjúfa framkvæmdastopp í orkumálum Kári Stefánsson, ákall um vaxtalækkun og hinsegin list Skemmtiferðaskip um tíu metrum frá strandi við Viðey Kínversk ferðaskrifstofa mátti sín lítils gegn TM Komu litlum fiskibáti til bjargar Sjá meira