Erlent

Fylgdust með forsætisráðherra Belgíu

Stefán Rafn Sigurbjörnsson skrifar
Forsætisráðherra Indlands Narendra Modi hitti Charles Michel í Belgíu í gær.
Forsætisráðherra Indlands Narendra Modi hitti Charles Michel í Belgíu í gær. Nordicphotos/AFP
Hryðjuverkamennirnir sem gerðu árás á Zaventem-flugvöll og Maelbeek-lestarstöðina í Brussel höfðu leitað sér upplýsinga um Charles Michel, forsætisráðherra Belgíu, skrifstofu hans og heimili.

Upplýsingar þess efnis fundust í fartölvu sem hafði verið fleygt í ruslatunnu.

Óstaðfestar heimildir herma að í tölvunni hafi fundist myndir af skrifstofu forsætisráðherrans og skipulagsteikningar.

Í tölvunni fundust einnig hinstu skilaboð eins árásarmannsins, Brahims el-Bakraoui, þar sem hann kvartar yfir því að hafa verið hundeltur.

Belgísk yfirvöld hafa þá endanlega staðfest tölu látinna en 32 létust í árásinni, 17 Belgar og 15 einstaklingar af öðrum þjóðernum.

Þessi grein birtist fyrst í Fréttablaðinu þann 31. mars.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×