Innlent

FVA í fyrsta sinn í undanúrslit

Stefán Árni Pálsson skrifar
Viðureignin fór 24-23.
Viðureignin fór 24-23. mynd/skjáskot af vefnum ruv.is
FVA, Fjölbrautaskóli Vesturlands á Akranesi, bar sigur úr býtum, 24-23, gegn Flensborgarskólanum, í Gettu betur í kvöld.

FVA hefur aldrei áður komist í undanúrslit keppninnar og fögnuði liðsmenn því gríðarlega þegar ljóst var að skólinn hafði unnið viðureignina.

Liðið tryggði sér sigurinn á lokaspurningunni en spurt var um brúðarkjóla þekktra kvenna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×