Golf

Furyk og Day efstir á The Barclays

Guðmundur Marinó Ingvarsson skrifar
Furyk slær upp úr glompu á 18. holu - beint á pinna
Furyk slær upp úr glompu á 18. holu - beint á pinna vísir/getty
Jason Day og Jim Furyk eru efstir fyrir lokadag The Barclays golfmótsins á Ridgewood vellinum í New Jersey í Bandaríkjunum. Þetta er fyrsta af fjórum mótum FedEX bikarsins.

Day og Furyk eru á níu höggum undir pari og eru höggi á undan Hunter Mahan. Sjö kylfingar eru á sjö höggum undir pari.

Adam Scott var efstur á mótinu fyrir þriðja dag í gær en átti í miklum vandræðum og lék á fjórum höggum yfir pari. Scott er á fjórum undir pari samanlagt líkt og efsti kylfingur heimslistans Rory McIlroy en of snemmt er að afskrifa þá í toppbaráttunni þó þeir séu fimm höggum frá toppnum.

Fjórði og síðasti dagur mótsins verður í beinni útsendingu á Golfstöðinni og hefst útsendingin klukkan 16.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×