Sport

Fury og Klitschko mætast aftur í hringnum í lok næsta mánaðar

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Fury vann óvæntan sigur þegar þeir Klitschko mættust í fyrra.
Fury vann óvæntan sigur þegar þeir Klitschko mættust í fyrra. vísir/getty
Hnefaleikakapparnir Tyson Fury og Wladimir Klitschko berjast um heimsmeistaratitilinn í þungavigt í Manchester 29. október á þessu ári.

Þetta er endurtekning á bardaga þeirra frá því í nóvember á síðasta ári. Þar vann Fury óvæntan sigur og varð fyrsti maðurinn í 11 ár til að bera sigurorð af Klitschko.

Þeir áttu að mætast aftur í júlí á þessu ári en ekkert varð af bardaganum vegna meiðsla Furys.

Litlir kærleikar eru á milli Englendingsins og Úkraínumannsins en þeir hafa verið duglegir að skjóta á hvorn annan undanfarna mánuði.

Í sumar líkti Klitschko m.a. Fury við sjálfan Adolf Hitler vegna ummæla hans um gyðinga.

Fury hefur einnig látið Klitschko heyra það og sagði að það hefði verið smán fyrir Úkraínumanninn að tapa fyrir sér, feitum manni en ekki íþróttamanni.

Box



Fleiri fréttir

Sjá meira


×