Viðskipti innlent

Furðar sig á aðkomu Ólafs Barkar að gæslu­varð­halds­úr­skurði

Aðalsteinn Kjartansson skrifar
Hreiðar Már Sigurðsson segist halda að eitt af skjölunum í málsgögnum sé falsað.
Hreiðar Már Sigurðsson segist halda að eitt af skjölunum í málsgögnum sé falsað. Vísir/Pjetur
Hreiðar Már Sigurðsson, fyrrverandi forstjóri Kaupþings, segir að hann hafi orðið fyrir miklum vonbrigðum þar sem hann sat í einangrun á Litla hrauni þegar hann áttaði sig á því að Ólafur Börkur Þorvaldsson dómari hafi tekið þátt í að dæma sig í einangrun. Þetta sagði hann í upphafi skýrslutöku í Héraðsdómi Reykjavíkur.

Sjá einnig: „Hvers konar rugl er þetta?“

Ástæðan fyrir vonbrigðum Hreiðars eru fjölskyldutengsl dómarans við Davíð Oddsson, fyrrverandi seðlabankastjóra. „En Ólafur Börkur hefur sjálfur tekið þát afstöðu í öðrum málum að hann sé vanhæfur ef umræddur frændi tengist málum sem hann þarf að skera úr um,“ sagði Hreiðar.

Í ræðu sinni í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun sagðist hann einnig telja að skjöl í málsgögnunum séu fölsuð.

„Í máli þessu sem er rekið hér fyrir Héraðsdómi í dag er skjal á bls. 3.764 sem ég held að sé falsað. Á því skjali stendur að Ólafur Þór og Benedikt Bogason hafi mætt í dómshúsið við Lækjartorg og þinghald hafi farið fram þar sem Benedikt hafi veitt heimild til að hlera síma minn,“ sagði hann.

„Þetta held ég að sé rangt og vil ég biðja um aðstoð háttvirts dóms að komast að hinu sanna í þessu máli.“

Sjá einnig: Hreiðar bauðst til að borga fyrir bíl og bílstjóra

Hreiðar sagði í ræðu sinni að starfsmenn Sérstaks saksóknara hefðu hringt í Benedikt Bogason héraðsdómara og beðið hann um að útvega heimild til að hlera símann sinn. Hreiðar segir að Benedikt hafi þá tjáð þeim að það væri lítið mál og best væri ef þeir kæmu einfaldlega heim til hans til að fá úrskurðinn.

„Ég kærði Benedikt Bogason og Ólaf Þór Hauksson til embættis ríkissaksóknara vegna þessarar málsmeðferðar,“ sagði Hreiðar en hann segir ríkissaksóknara ekki hafa séð sér fært að rannsaka málið þar sem sakir væru fyrndar. 


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×