Menning

Funi verður á ferð og flugi í allt sumar

Friðrika Benónýsdóttir skrifar
Bára og Chris. "Þetta verður blandað prógramm, meðal annars vísur eftir föður minn,“ segir Bára.
Bára og Chris. "Þetta verður blandað prógramm, meðal annars vísur eftir föður minn,“ segir Bára. Mynd/Úr einkasafni
Við ætlum að spila á hljóðfæri sem fólk heyrir ekki oft í, langspil, íslenska fiðlu, finnskt hljóðfæri sem heitir kantele og svo auðvitað gítar,“ segir Bára Grímsdóttir spurð hvaða tónlist þau Chris Foster ætli að flytja á tónleikunum á Gljúfrasteini á sunnudaginn. „Þetta verður blandað prógramm, lög af diskunum okkar tveimur, Funa og Flúri, og líka annað efni, meðal annars vísur eftir föður minn, fallega vetrarlýsingu um Vatnsdalinn.“



Bára og Chris hafa nóg fyrir stafni í sumar, eru að vinna nýtt efni auk þess sem þau munu spila á Hólum í Hjaltadal um verslunarmannahelgina og taka þátt í ráðstefnunni Tradition for Tomorrow á Akureyri seinnihluta ágústmánaðar þar sem þau verða bæði með tónleika og vinnusmiðjur. „Þetta er stærsti viðburður sinnar tegundar á Norðurlöndum,“ segir Bára. „Það verða þarna söngvarar, tónlistarmenn og dansarar frá öllum Norðurlöndunum.“



Auk alls þessa verða þau Bára og Chris með tónleika í Norræna húsinu ásamt norrænu tónlistarfólki þann 19. ágúst. „Þannig að það er nóg að gera en við byrjum sem sagt á Gljúfrasteini á sunnudaginn,“ klykkir Bára út.



Stofutónleikarnir á Gljúfrasteini eru haldnir hvern sunnudag frá 1. júní til 31. ágúst og hefjast ávallt klukkan 16. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×